Joe Bloggs

Collectors edition blogg template


Fjallar um Kína þessa dagana
Partý Partý Póstur!






















Blogg Samfélagið
Heyrt & Séð
Kallarnir2
Erla Þóra
Auðvaldið
Kolbrún
Ingjaldsfréttir
Aldenhoff Hin Mikkli Af Flanders
Vefatómstöðin
Bauni Byrgisson
Vefbók McMagga
Krissan
Valþór
Svenni
BBC-Akranes
Habblaha
Míchæl
Bára DK
Reykfjörð
Reynsi
Hekla
Leibbi Djass
Sara Karls

Skáknörd

Ég er skáknörd. Hef verið síðan ég eignaðist fyrstu skáktölvuna mína og lærði nokkur mát sem tölvan höndlaði ekki leik fyrir leik. Svo fannst mér alltaf jafn gaman að vinna tölvuna eftir þeirri leið.

Hef teflt frekar reglulega online þegar ég fæ tækifæri til. Maður lendir oft á kostulegum karakterum. Sérstaklega ef þeir geta eitthvað í skák. Það virðist fylgjast að eftir því sem þeir eru betri, þá aukast líkurnar á einhverskonar klikkun. Fyrir svona ári síðan lennti ég í skák við gaur sem var með 1850 stig meðan ég var með 1600. Maður notar nátturlega hvert tækifæri til að spila við betri andstæðing, en það kom mér verulega á óvart þegar ég vann skákina. Svo fórum við að spjalla. Kom þá í ljós að hann var gjörsamlega út úr dópaður heima hjá sér á einhverju læknacodine eftir að hafa farið í uppskurð á fót. Hann sagðist hafa verið að gera tilraunir í kjallaranum sínum og hafi orðið sprenging. Hann neitaði að vera með meth lab. Ég tók hann semí trúanlegan því hann var með fáránlega mikið af stigum... svona snillings mikið, og hann var byrjaður að rugla þegar skákin byrjaði þannig að þetta þurfti ekki að vera afsökun. En jamm, maður getur ekki verið viss.

Síðasta skák mynnti mig mjög mikið á þennan mann. Aftur mætti ég andstæðing með fleiri stig en ég. 1750 meðan ég er ennþá á sama reki í kringum 1600. Ég spjalla oft við þessa menn. Í þetta sinn segist hann vera yfirmaður í kjarnorkukljúfi í fokking Íran. Hann hefur mikla fyrirlitningu fyrir BNA og þótti frábært að ég sé í Kína. Hann talar með miklu yfirlæti, sennilega þar sem hann er stigahærri og hann heitir nafni sem passar. Hef enga ástæðu til að trúa honum ekki. Svo vinn ég skákina með leiftursókn upp hægri væng eftir að hafa sett upp flókið borð og hann tekur einhvern þann svakalegasta internet trylling sem ég veit um. Ég var ekki búinn að sleppa orðinu af "good game" fyrr en hann var búinn að ausa út öllum svívirðingum sem hann kunni um móðir mína. Hann heimtar jafnframt annan leik þar sem augljóslega hafi verið um heppni að ræða. Ég neitaði því nátturlega.. meira bara svona til að sjá hversu reiður hann yrði og jafnframt af "rasisma" míns gagnvart mönnum á þessu svæði sem eru frekir og lifa eftir miðaldar viðhorfum. Ég hugsa að hann hafi sprengt æð í auganu.

Tékkaði svo á fréttunum til að sjá hvort það hefði orðið einhverskonar "incident" í Íran eftir þennan trylling sem var reyndar ekki :)

Annars er ég enn í kringum 1600 stiginn. Næ ekkert að bæta mig verulega úr því held ég. Ekki nema maður fari að læra byrjannir og því um líkt. Ekkert viss um að ég vilji heldur reyna það miðað við karakterana sem maður mætir í þeim business.

Meira ef skákævintýrum Jóa í næstu viku og þar með líkur þessu skáknörd bloggi.


laugardagur, apríl 11, 2009

.................
Status

Allt gott í Kína. Lítið um dýrðir hjá mér enda staurblankur eftir skólann og tjah atvinnuleysið sem ég bjóst ekki við í svona langan tíma þannig að aldrei sótti ég um atvinnuleysisbætur. Frekar steikt...

Mér tókst að lifa á svona 30.000 ISK núna síðasta mánuðinn. Besti hlutinn við það er að ég fór að borða matinn sem kemur alltaf upp á skrifstofuna og kostar í kringum 90 ISK. Ég hélt að þetta væri hroðbjóður, en ég tek þetta hiklaust fram yfir flesta veitingastaði í nágreninu. Þetta er svona eins og góður Grænn Kostur en samt með smá kjöti og hrísgrjónum. Verður ekki betra og hollara... þangað til ég fæ matareytrun af þessu.

Kv.

Drekinn


föstudagur, mars 27, 2009

.................
Smá

Nýtt blogg úr leiðinlegustu átt. Það er gaman að læra á fiskiðnaðinn. Mikið af breytum og möguleikum. Les mér mikið til á netinu á hinu norska introfish. Þar las ég í dag "The Icelanders have no direct rights to the Mackerel fishing in the North Atlantic". Þar með er Ísland sjóræningjaþjóð í augum norska ráðherrans Helgu Pedersen og ætlar hún að skoða innflutningsbann á olíu, mjöli og makríl í Noregi frá Íslandi.

Fact. Ísland hefur reynt að komast í makríl klúbbinn, en var bara gefið observer status. Þar með, skv. Helgu frænku, ætti Ísland að virða sér heldri þjóðir og ekki voga sér að veiða fiskinn í sjónum í kringum Íslandi.

Ég vissi ekki að frændur okkar ættu það til að vera svona ósanngjarnir. Fari þetta allt til fjandans og vinsamlegast veiðum áfram 112.000 tonn alveg þangað til okkur er hleypt í klúbbinn. Helga Pedersen er svona eins og bullie á skólalóðinni. Það á að sparka í punginn á þeim.


föstudagur, mars 27, 2009

.................
Mr. Gír

Mótframbjóðandi í VR segir við Gunnar Páll Pálsson tveggja borða mann: Þú hefur nú sagt í viðtölum að þú hafir verið að vernda hagsmuni bankanna.

GPP: Það er rangt. Ég sagðist vera að vernda hagsmuni hluthafa bankans.

...

Gott að þetta kom fram. Annars hefði ég misst af aðal punktinum í þessu. Kann að meta svona fólk sem vill leiðrétta allt sem rangt er.

...

Svo vil ég fagna því að fá sennilega að borga fyrir húsin sem fólk ákvað að kaupa á erlendum lánum... þ.e. ef ég kem til með að borga skatta á Íslandi. Þetta þykir öllum geðveikt eftir því sem ég best veit, og ég hef ekki heyrt eitt múkk gegn þessu. Auðvitað kemur fram í fréttum stöð 1 að fyllsta jafnræðis sé gætt og verðtryggingin verði nú sett ofan á þetta. Það er ekki nema sanngjarnt. Frábært!

Persónulega þykir mér þetta vera snarbilað ójafnræði og ég hef lítið álit á því ríkisvaldi sem kemur með svona hugmyndir. Ég fynn auðvitað til með fólki sem ákvað að taka erlend lán, en það var þeirra ákvörðun alveg eins og ég ákvað að tippa á að Manchester United myndi vinna Derby. Reyndar þykir mér hafa verið töluvert meiri líkur á að Derby myndi tapa heldur en að krónan myndi ekki lækka verulega en fólkið var jú allt platað af illum bankastarfsmönnum.

Í fyrsta lagi er þetta snarbilað ójafnræði í ljósi þess að krónan hefur verið allt of hátt skráð samkvæmt öllum kokkabókum. Þetta þýðir, eða ef léleg ákvörðunnartaka var ekki nægileg til að verða fólki að falli, þá þarf að bæta við hjálpina með því að gefa peninga frá ríkinu miðað við allt of hátt gengi. Ríkið á nátturlega alveg nóg af deigi næstu árin, þannig að það þarf ekki að hafa áhyggjur af þessu. Í öðru lagi er þetta mismunun á þeim sem ákváðu að taka erlend lán eftir því á hvaða tíma þeir gerðu það. Í Þriðja lagi er þetta augljóslega ójafnræði gagnvart þeim sem ekki önuðu út í að vera töff og taka erlent lán, eiga ekkert hús og búa hjá ömmu sinni.

Óli Gír með EUR 400.000 lán fyrir einbýlishúsi í úthverfi Rvk fær að breyta láninu sínu á gengisvísitölu 120 meðan hún er í 200 plús og með fjármagnshöftum! Ríkið tekur á sig alla gengisáhættuna hans Mr. Gír´s og gott betur því það eru fjármagnshöft. Djöfull er alveg fokking frábært að vera svona vel hedgaður aftur í tíman af ríkinu! Mesta back to the future hedge sem sögur fara af! Mér þætti fróðlegt að vita ef nokkuð í þessa líkingu hefur verið gert í öðrum löndum í gengiskreppu.

Ég fatta að það er nauðsynlegt að koma með einhverjar aðgerðir fyrir fjölskyldur sem eru í þessum vanda, en hefði hugsanlega ekki verið hægt að íhuga að miða við einhverja ákveðna gengisvísitölu í yfirtökunni, þannig að Mr. Gír sé ekki alveg í blússandi plús á kostnað skattborgara? Segjum 150 eða eitthvað álíka arbitrary eftir einhverjum útreikningum, og þá myndi ég segja að ríkið væri mjög gjafmillt á kostnað allra! Hefði þetta ekki verið örlítið meira jafnræði gagnvart öllum fyrst það er yfirleitt farið í svona aðgerðir sem þýða augljóslega mikla mismunun hvernig sem fer.

Í alvöru talað... líkurnar á því að ég komi til með að vinna á Íslandi í framtíðinni hrapa ef af þessu verður. Þetta er ekki að standa saman eða neitt slíkt. Þetta er gróf mismunun í þágu Mr. Gírs. Er ekki hægt að snara trukka bílaláninu hans líka yfir á ISK fyrst það er verið að þessu? Það hlýtur að vera næst.

Bílalánasjóður yfirtekur öll erlend bílalán á genginu sem þau voru tekin. Fjandinn.

HFF


fimmtudagur, janúar 08, 2009

.................
Jóla

Til hamingju með jólinn. Búið að vera æðisgengið að koma heim og hitta fólkið og borða matinn.

Ætlaði að fara í jólalestrargírinn áðann. Tók upp Auðnina sem ég fékk í jólagjöf. Bókin byrjaði á óveðri og marri í timburhúsi. Plottið í bókinni kom í ljós. Þóra lögfræðingur send til Grænlands til að láta framfylgja verktakasamningum þar sem vinnubúðir hafa leystst upp af óútskýrðum orsökum. Hinsvegar þótti ekki góð hugmynd að senda yfirvöld af nokkru tagi á staðinn áður en lögfræði menntaða hetjan okkar lætur vaða. Hugsanlega hefði fólk orðið úti þarna og gæti verið eitthvað um stöku sjálfsmorð, en annars allt í góðu og um að gera að fara og afhenda stefnu eða eitthvað þvíumlíkt. Kannski til að sjá um að sleðahundar fari í gjaldþrotaskipti. Allavega, einhverskonar lögfræðilegir gjörningar bráðnauðsynlegir. Söguhetjan hlýtur að hafa upplifað einhverskonar vakningu á því hvað þarf að gera til að lifa af í náttúrunni á Grænlandi þegar maður er íslenskur kvenkyns lögfræðingur á háhæluðum skóm. Annars fór ég nú ekkert mikið lengra í þessu tímamóta ritverki.

Las hinsvegar Síðasta uppgötvun Einsteins. Það þótti mér tíma vel varið. Skemmtileg hugmynd og bíð spenntur eftir kvikmyndinni sem hlýtur að koma. Ég ætla að hætta mér út á grein og segja að það hafi farið örlítið meiri hugsun í sögu uppbygginguna í þeirri bók samanborið við Auðnina.

Farinn að lesa Ofsa næst. Vonandi verður hægt að nota það sem cliffnotes fyrir Íslendingasögurnar sem ég er ekkert allt of sleipur í.


mánudagur, desember 29, 2008

.................

Blogger